Sími: 554 19 89

Toppur til hægri

Þökulagnir

Þökulagnir Við þökulagnir undirbúum við hjá Garðlist jarðveginn með því að slétta svæðið og með áburðargjöf. Ef þökur eru lagðar á brekkur eru þær festar niður með trénöglum sem auðvelt er að fjarlægja. Einnig getum við tekið að okkur að leggja þökur á svæði þar sem vinnuvélar eða eitur hafa skilið eftir skemmdir.

Þegar búið er að þökuleggja er mikilvægt að fylgjast vel með rakastigi á torfinu og vökva það vel á meðan það er að gróa saman. Einnig er mikilvægt að gefa grasinu áburð. Hefja má slátt á grasi þegar það hefur náð 10cm hæð. Þá er gott að byrja á því að slá grasið í hæðstu stillingu á sláttuvél, lækka svo stillingu í hvert skipti sem slegið er þar til komið er í óska grashæð sem oft er 3-4 cm á venjulegum heimilisgörðum. Ef þið hafið hugsað ykkur að láta leggja þökur á garðinn þá hringið og pantið þjónustu hjá okkur í Garðlist.

Hvenær er góður tími til að þökuleggja: Leggja má túnþökur frá vori og fram á haust.

Hvernig er rukkað fyrir að þökuleggja: Við þökulagnir er Garðlist að vinna í tímavinnu og tekur fyrir tímann á manninn. Þannig reiknast að ef hópur með 3 starfsmönnum kemur í garð til þess að setja mold í beð og vinnan er unnin á 1 tíma, reiknast það sem 3 klukkustundir. Þegar verið er að þökuleggja má reikna með því að tekið er fyrir þann tíma sem fer fyrir hópinn að koma sér í garðinn og fyrir þann tíma sem fer í að fara með úrganginn á haugana. Garðlist tekur ekki sérstakt gjald fyrir förgun á haugum. Tekið er gjald fyrir akstur eða notkun á bíl.

Panta þjónustu