Sími: 554 19 89

Toppur til hægri

Beðahreinsun

img_20071002084445_IcDm_008_41_min[1] Um beðahreinsun: Hjá Garðlist vinna sérstakir hreinsunarhópar sem sjá um beðahreinsanir, hreinsunarteymi okkar samanstanda af 5-6 starfsmönnum sem eru mjög vel þjálfaðir og hafa mikla reynslu. Vinna við að hreinsa beð felst m.a. í að fjarlægja arfa og aðra óæskilega aðskotahluti. Við leysum öll verk fljótt og vel af hendi og erum alltaf með ný og góð tæki með okkur. Einnig gætum við þess að skilja vel við umhverfi þeirra garða sem við hreinsum. Sópum og blásum stéttar og gangstíga af mold og öðrum garðaúrgangi. Að verki loknu tökum við með okkur allan garðúrgang.

Hvenær er góður tími til að hreinsa beð: Á vorin er gott að yfirfara beðin. Þegar vorhret og næturfrost eru að mestu afstaðin má fara að huga að því að taka til í blóma- og runnabeðum.

Hversu oft: Mælt er með beðahreinsun minnst tvisvar sinnum yfir sumarið.

Hvernig er rukkað fyrir beðahreinsun: Við hreinsanir er Garðlist að vinna í tímavinnu og tekur fyrir tímann á manninn. Þannig reiknast að ef hópur með 5 starfsmönnum kemur í garð til þess að hreinsa og vinnan er unnin á 1 tíma, reiknast það sem 5 klukkustundir. Þegar verið er að hreinsa beð má reikna með því að tekið er fyrir þann tíma sem fer fyrir hópinn að koma sér í garðinn og fyrir þann tíma sem fer í að fara með úrganginn á haugana. Tekið er gjald fyrir akstur eða notkun á bíl og förgun úrgangs.

Panta þjónustu