Viðhald 2010
Garðlist ehf. tekur þátt í sýningunni Viðhald 2010 sem haldin verður í Vetragarðinum í Smáralind dagana 5. - 6. mars. Á sýningunni Viðhald 2010 mun fjöldi fyrirtækja og opinberra aðila gefa upplýsingar um allt sem lýrur að viðhaldsmálum.
Sýningin VIÐHALD 2010 verður haldin dagana 5. - 6. mars næstkomandi í Vetrargarðinum í Smáralind. Sýningin verður stórglæsilegt upplýsingatorg þar sem einstaklingar, húsfélög og húseigendur fá svör við spurningum um allt það sem lýtur að viðhaldsmálum. Fjöldi fyrirtækja og opinberra aðila munu gefa upplýsingar sem reynast heldur betur gagnlegar fyrir húseigendur sem stefna að endurbótum og/eða viðhaldi á næstu mánuðum. Sérfræðingar á öllum sviðum sjá til þess að þú getir fengið svör við spurningum sem varða greiningu vanda, réttindi og skyldur, fjármögnun, skipulag, framkvæmd, ábyrgð og eftirlit.
Nú er því heldur betur rétti tíminn til þess að láta hendur standa fram úr ermum.
Fleiri fréttir
-
10. maí 2012Vorhreinsun
-
04. maí 2012Moltuhaugur í garðinn
-
12. apr 2012Forræktun grænmetis
-
07. mar 2012Nú er tíminn til að klippa tré og runna
-
07. mar 2012Hugað að gróðursetningu vorlauka
-
19. okt 2011Það er bjart framundan
-
12. sep 2011Tvö góð ráð gegn mosa
-
01. sep 2011Haustverkin
-
22. júl 2011Sumar klipping og beðahreinsun
-
11. júl 2011Ný heimasíða fer í loftið