Tvö góð ráð gegn mosa
Þegar líða tekur á haustið er að ýmsu að huga í garðinum. Undirbúa þarf garðinn vel fyrir veturinn og hér eru tvö góð ráð um hvernig hægt er að undirbúa grasflötina.
Hægt er að bregðast við mosa í grasi á ýmsan hátt og ekki ber öllum heimildum saman um til dæmis sláttur hæð á grasi fyrir veturinn, það sem hinsvegar er gott að hafa í huga er að mosi vex helst þar sem jarðvegur er súr og loftlaus, það er, þar sem vatnsinnihald hans er mikið og súrefni lítið. Einnig þar sem skuggasvæði eru í garðinum og sól nær ekki að skína.
Sláttuhæð hefur því áhrif á mosavöxt og mikilvægt er að hafa grasið ekki kafloðið fyrir veturinn, hinsvegar er heldur ekki gott að slá það mjög snöggt. Gott er að miða við að grasið sé slegið niður í um 4-5 sm hæð fyrir veturinn.
Þar sem mosi vex í súrum jarðvegi er gott að bera á grasið kalkríkan áburð á haustin (ágúst - nóvember), kalk vinnur gegn súrnun jarðvegs og heldur mosavexti niðri. Áburður er líka styrkjandi fyrir rótarkerfið.
Svo er líka að fylgja þessari áburðargjöf eftir með því að bera á grasið aftur á vori þegar vöxtur þess fer af stað.
Fleiri fréttir
-
10. maí 2012Vorhreinsun
-
04. maí 2012Moltuhaugur í garðinn
-
12. apr 2012Forræktun grænmetis
-
07. mar 2012Nú er tíminn til að klippa tré og runna
-
07. mar 2012Hugað að gróðursetningu vorlauka
-
19. okt 2011Það er bjart framundan
-
01. sep 2011Haustverkin
-
22. júl 2011Sumar klipping og beðahreinsun
-
11. júl 2011Ný heimasíða fer í loftið