Talsvert um sitkalús í Greni þennan veturinn
Sitkalús hefur síðastliðin ár aukist til muna í grenitrjám. Lúsin leggst ekki í dvala á veturna og heldur áfram að eyðileggja trén. Sitkalúsina má þekkja á fagur grænum lit hennar og hana má finna neðan á barri grenitrjáa. Sitkalúsin sígur safa úr barrnálum. Það gerir að verkum að barrið verður brúnt og dettur af. Lúsin leggst fyrst á innsta barrið við trjástofninn og vinnur sig síðan út með trénu, af þessum sökum verður fólk oft á tíðum ekki vart við lúsina fyrr en á vorin þegar trén eru búin að missa nánast allt barrið, af þessum sökum er mikilvægt að fylgjast vel með barri grenitrjáa og þá sérstaklega á haustin þegar trén fara að búa sig undir veturinn,á þeim tíma er best að úða trén við Sitkalúsinni. Með því að úða fyrir lúsinni á haustin er hægt að koma í veg fyrir að hún haldi áfram að eyðileggja trén. Með góðu eftirliti og úðun eftir þörfum ætti tréð að ná að komast í sitt upprunalega horf.
Við hjá Garðlist munum vera að úða fyrir Sitkalúsinni næstu daga. Endilega hafið samband við okkur ef þið eruð með grenitré í síma 554-1989 eða Garðaúðun
Fleiri fréttir
-
10. maí 2012Vorhreinsun
-
04. maí 2012Moltuhaugur í garðinn
-
12. apr 2012Forræktun grænmetis
-
07. mar 2012Nú er tíminn til að klippa tré og runna
-
07. mar 2012Hugað að gróðursetningu vorlauka
-
19. okt 2011Það er bjart framundan
-
12. sep 2011Tvö góð ráð gegn mosa
-
01. sep 2011Haustverkin
-
22. júl 2011Sumar klipping og beðahreinsun
-
11. júl 2011Ný heimasíða fer í loftið