Ræktun græðlinga
Við ræktun græðlinga af víði er fyrsta skrefið að klippa græðilingana. Mælt er með því að klippa græðlingana snemma vors og stinga þeim niður, þegar frost er að fara úr jörðu. Búast má við því að eftir því sem að líður fram í sumarið beri stunga græðlinga verri árangur. Gott er að miða við að nota ekki of granna sprota, margir miða við blýantsþykkt.
Þegar það er svo búið að klippa græðlingana þarf að geyma þá að minnsta kosti viku og helst ekki lengur þangað til að þeim er stungið niður. Græðlinga þarf að geyma á dimmum og köldum stað, við hæfilegan raka, mjög vel hefur reynst að setja þá í plastpoka og geyma þá svoleiðis eða í fötu með vatni í botninum.
Græðlingana þarf svo að setja niður á vel völdum stað, hann þarf að vera skjól góður og sólríkur. Mjög gott er að undirbúa beðið með því að setja í það áburð eins og blákorn, og ef verið er að planta í nýjan mýrar jarðveg er gott að bera áburðar kalk á hann. Einnig hefur gefið góða raun að planta græðlingum í gegnum plastpoka, það er að þekja svæðið fyrst með svörtum plastpoka og stinga græðlingunum í gegnum hann, það hefur verið gert til þess að minnka uppkomu á arfa og til þess að halda raka í jarðveginum jafnari.
Græðlingum er stungið niður snemma vors, yfirleitt eins fljótt og hægt er eftir að frost er farið úr jörðu. Græðlingunum á að stinga aðeins á ská niður í beðið með um 20 cm radíus á milli plantna og passa upp á að snúa þeim rétt eða þannig að brumin snúi upp.
Venjulega er ræktunartími víðiplantna miðaður við 2 sumur og eru þá orðin nógu vel þroskuð til þess að þola umplöntun á endanlegan vaxtarstað.
Fleiri fréttir
-
10. maí 2012Vorhreinsun
-
04. maí 2012Moltuhaugur í garðinn
-
12. apr 2012Forræktun grænmetis
-
07. mar 2012Nú er tíminn til að klippa tré og runna
-
07. mar 2012Hugað að gróðursetningu vorlauka
-
19. okt 2011Það er bjart framundan
-
12. sep 2011Tvö góð ráð gegn mosa
-
01. sep 2011Haustverkin
-
22. júl 2011Sumar klipping og beðahreinsun
-
11. júl 2011Ný heimasíða fer í loftið