Ný heimasíða fer í loftið
Nú hefur Garðlist ehf opnað nýjan vef. Vefurinn hefur að geyma mikið af upplýsingum varðandi þjónustuna sem fyrirtækið veitir ásamt því að innihalda ganglegar upplýsingar varðandi viðhald á görðum.
Það er mikið búið að ganga á hjá Garðlist ehf á þessu ári, í lok febrúar síðastliðnum festum við kaup á nýju húsnæði við Tunguháls 7 í Reykjavík og fluttum í það á mánuðunum sem á eftir komu.
Sumarið hófs svo með hvelli þegar líða tók á maí og þá eins og önnur sumur byrjuðu að vinna hjá okkur mikið af starfsfólki, bæði fullt af nýjum starfskröftum svo og aðrir sem hafa unnið hjá okkur fleiri sumur. Þetta sumar erum við að sinna nánast öllum bæjarfélögum á stór höfuðborgarsvæðinu með slátt og aðra vinnu. Þegar mikill niðurskurður liggur fyrir hjá bæjarfélögum hefur Garðlist þó komið best út hvað varðar verð og gæði við þjónustu þeirra. Einnig má segja það sama um einstaklinga og húsfélög í þjónustu okkar. Við erum að taka að okkur mikil og margvígsleg verkefni þetta sumarið sem koma að viðhaldi garða.
Nú þegar sumarið er að verða hálfnað tókum við svo heimasíðuna okkar í gegn og stefnum á að gera hana að upplýsandi vef um starfsemi fyrirtækisins og allt sem viðkemur viðhaldi að görðum.
Fleiri fréttir
-
10. maí 2012Vorhreinsun
-
04. maí 2012Moltuhaugur í garðinn
-
12. apr 2012Forræktun grænmetis
-
07. mar 2012Nú er tíminn til að klippa tré og runna
-
07. mar 2012Hugað að gróðursetningu vorlauka
-
19. okt 2011Það er bjart framundan
-
12. sep 2011Tvö góð ráð gegn mosa
-
01. sep 2011Haustverkin
-
22. júl 2011Sumar klipping og beðahreinsun